bloggið okkar
myndir
05.07.2006 01:07:04 / asta

Ég er í fílu núna er ég búin að missa svo voða góða leigjendur og er að fá stress kast um það hvort ég verði búin að fá nýja leigjendur fyrir næstu mánaðamót. Þannig að ef þið vitið um einhvern sem er að leita sér að íbúið þá er þetta 60 fermetra, 3. herbergja íbúð, á jarðhæð, í miðbæ hveragerðis. leigan er 55.000.- og hiti innifalin. Ef þið vitið um einhvern sem gæti haft áhuga þá skrifið í  gestabókina og látið mig vita.

það var alveg svaka gaman á laugardagkvöldið heima hjá Tinnu og svo gerði Tinna blogg sem við getum allar skrifað á svaka gaman endilega kíkja  hottis  mig hlakkar bara svo til að geta fengið mér í glas með þeim og farið með niður  í bæ og djammað en ég er samt alveg róleg það er bara þegar það er ný búið að vera hittingur þá er ég svolítið fúl að geta ekki tekið almennilega þátt í öllu. En svona er það bara og ég sætti mig bara við það. 

Ég og mamma fórum í heimsókn til Guðný og Júlíu í dag alveg svaka gaman það er voða gaman að leika við lítill börn þá fynnst okkur við svo rosalega stórir en við erum alltaf góðir við hana Júlíu við gáfurm henni nami vegna þess að hún var lasinn og þá þurfti hún að fá nami.

Hann Guðbrandur minn var svo fyndin á Sunnudagskvöldið, hann var búin að vera upp í sumarbústað með ömmu sinni og afa og búin að fara seinnt að sofa og vakna snema í þrjár nættur og á sunnudagskvöldið þá var hann kominn með svo mikinn svefngalsa að hann ætlaði aldrei að geta sofnað, það var allt svo svakalega fyndið sem hann sagði og hann hafði svo rosalega mikið að segja það var ekki stoppað að tala þannig að það endaði þannig að við tókum hann bara upp í til okkar eitthvað um 24.30 og þá var hann ennþá í fullu fjöri og þótt að við værum alveg að sofna sitt hvoru meginn við hann þá var hann hress, hendurnar á honum voru stríðskarlar og þeir gerðu eitthvað alveg svakalega fyndið og það var hleigið í  ca.15 mín og svo var haldið áfram að leika sér og hlæja og spjalla við sjálfan sig og allt var svo fyndið og ég held að hann hafi sofnað eitthvað um 2.00 ég man ekki neitt eftir það kannski sofnaði ég bara en ekki hann 

 

Mér fynnst ég eiga svo sæta stráka. lang sætastir og þeir eru alveg bestu vinir.

bless í bili.


Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Dagsetning
22. mars 2010
Klukkan