bloggið okkar
myndir
12.10.2006 11:01:01 / asta

Nýtt blog

Ég ákvað að herma eftir Önnu Stínu og er kominn með nýtt blog.
astam.bloggar.is

» 0 hafa sagt sína skoðun

09.10.2006 10:14:07 / asta

afmælið búið.

núna er Guðbrandur minn orðin 6 ára og það er búið að taka nærum því viku að halda upp á það hann átti afmæli á miðvikudaginn og þá fórum við út að borða í hádeginu og hann fékk að ráða og svo á fimmtudaginn komu amma og afi í heimsókn með pakka og svo á föstudaginn þá var pízza partý fyrir vinina svo á sunnudaginn þá var veisla fyrir fjölskylduna. Alveg brjálað stuð og fullt af pökkum.



það var svo gaman að vera lítill ég man nú bara eftir þessum sama leik í afmælum þegar ég var lítil alveg æðislega gaman.

» 2 hafa sagt sína skoðun

14.09.2006 10:38:21 / asta

Ég sakna ykkar

okey stelpur ef að ykkur leiðist eða þið komið í rvk. þá megið þið endilega kíkja til mín ég er alltaf heima og sama hvenar á sólarhringnum það er og þið eruð alltaf velkomnar til mín ég vil ekki gleymast alveg núna þegar ég get ekki gert neitt.
ekki gleyma mér

» 5 hafa sagt sína skoðun

12.09.2006 10:12:55 / asta

karate strákur

Núna er Guðbrandur minn hættur að æfa sund ég var farinn að múta honum til þess að mætta í sund en hann vill endilega fara í karate og hann byrjar í því á miðvikudaginn og mér fynnst það vera alveg svakaleg spennandi. En hann er svo rosa góður núna alger engill.
Ég monta mig meira seinna bæjó.

» 1 hafa sagt sína skoðun

05.09.2006 10:38:50 / asta

myndir

nokkrar myndir af börnunum og það eru fleiri í albúminu mínu. endilega kíkja.

við sjáumst.


» 3 hafa sagt sína skoðun

31.08.2006 14:59:27 / asta

Erfitt að fara beint heim.

Ég var að hugsa um daginn þá var Guðbrandur í 45 mín á leiðini heim þá var ég að hugsa um gamla daga og hvað það var svakalega erfitt að fara beint heim það var svo margt spennandi sem maður sá á leiðini og varð að leika sér aðeins með áður en maður gat haldið afram. ég var einmitt að segja Auði frá því hvað hann var lengi á leiðini þá sagði hún mér sögu af henni og Ingibjörgu þegar þær voru litlar þa komu þær einu sinni  2 klukkustundum of seint í skólan vegna þess að það var svo margt spennandi á leiðini.
Guðbrandur minn er að fara á Seyðisfjörð  með  ömmu sinni og  afa í nótt vegna þess að hann er að fara í afmæli hjá langafa sínum og það verður haldið upp á það á Seyðisfirði og það er svaka spennandi að fara svona langt.
En ég segi frá því seinna bæjó.

» 4 hafa sagt sína skoðun

26.08.2006 17:11:58 / asta

skólinn byrjaður.

Núna á ég svo rosalega stóran strák hann er byrjaður í skólanum og ég og Helga Lilja höfum labbað með honum og svo höfum við labbað og náð í hann þegar skólinn er búin og hann er alveg svakalega hneikslaður á því að ég komi og nái í hann, hann sem er svo rosalega stór hann er byrjaður í rimaskóla og hann er orðin stóri bróðir alveg fáránlegt að ná í hann. En svo fékk ég leyfi vegna þess að ég þarf að fara í göngutúr með Helgu Lilju og þá er allt í lagi að ég labbi í skólan og nái í hann í leiðini.. ég segi frá meira seinna bæjó.

» 2 hafa sagt sína skoðun

12.08.2006 22:13:04 / asta

Sjáiði hvað þau eru sæt.

Guðbrandur Breki heldur að hann sé voða sniðugur þegar það er verið að taka mynd af honum.

Helga Lilja alger engill.


» 7 hafa sagt sína skoðun

01.08.2006 21:45:14 / asta

ennþá ólétt

ég er búin að komast að því að litla engla stelpan mín ætlar ekkert að koma það er of gott að vera í maganum mínum og ég er orðin of þreytt á þessu ég nenni ekki að vera ólétt lengur. ég er líka búin að hugsa alveg helling og mér fynnst að vísindamenn eigi að fynna upp á poka sem er eins og óléttubumba nema að það er bara hægt að taka hann af konuni og setja á manninn og bara stungið í samband í naflan og ef mamman og pabbin vilja fara saman út þá stingur maður bara í samband við ömmu eða afa mér fynnst það mjög sniðugt þá getur maður gert allt sem maður vill farið í ljós eða hestbak eða bara eitthvað sem manni langar til.
Núna er ég búin að afhenta íbúðina mína og ég held að þau séu bara fín. allavega er ég mjög glöð með þetta allt saman. og ánægð að þetta er búið áður en ég fæði þannig að ég þarf ekki að hafa áhyggjur af þessu öllu þegar hún er kominn til mín.
látiði endilega vita ef þið kíkjið á bloggið það er svo gaman að heyra að þið hafið komið
bæjó. 

» 7 hafa sagt sína skoðun

28.07.2006 11:37:22 / asta

ég kann ekki á tölvur

Ég var búin að skrifa fullt en það datt allt út og ég nennti ekki að skrifa aftur. En ég er allavega kominn með nýja leigjendur sem ég held að séu mjög fín en ég á samt eftir að sakna Önnu Stínu og Díönu. En samgleðst þeim samt mjög mikið.
Núna er ég orðin svo mikið ólétt að ég get varla hreyft mig en það er sem betur fer ekki langt eftir og ég verð bara að vera bjartsýn og reyna að kvíða ekki fyrir fæðinguni. En núna langar mig bara að fá hana til mín ég nenni ekki að hafa hana í maganum lengur. og hún  er orðin miklu  stærri en  meðalstærðin er þannig að ég held að hún ætli að fæðast eins stór og pabbi sinn.

» 1 hafa sagt sína skoðun

06.07.2006 22:43:49 / asta

:(

Hún hætti við að leigja hjá mér og núna þarf ég að fynna einhvern. endilega hafa samband ef þið vitið um einhvern.

» 7 hafa sagt sína skoðun

05.07.2006 21:19:21 / asta

æði pæði.

ég var að sýna konu íbúðina mína í dag og ég er kominn með leigjanda og það er alveg frábært. Mig líður alveg svakalega vel.

» 1 hafa sagt sína skoðun

05.07.2006 11:59:38 / asta

íbúðin mín

ég er að fara í dag að sýna íbúðina mína það er stelpa í hveró sem vantar leigu íbúð frá næstu mánaðamótum þannig að það væri æði ef hún vildi mína þá gæti ég hætt að  stressa mig á því.

» 1 hafa sagt sína skoðun

05.07.2006 01:07:04 / asta

Ég er í fílu núna er ég búin að missa svo voða góða leigjendur og er að fá stress kast um það hvort ég verði búin að fá nýja leigjendur fyrir næstu mánaðamót. Þannig að ef þið vitið um einhvern sem er að leita sér að íbúið þá er þetta 60 fermetra, 3. herbergja íbúð, á jarðhæð, í miðbæ hveragerðis. leigan er 55.000.- og hiti innifalin. Ef þið vitið um einhvern sem gæti haft áhuga þá skrifið í  gestabókina og látið mig vita.

það var alveg svaka gaman á laugardagkvöldið heima hjá Tinnu og svo gerði Tinna blogg sem við getum allar skrifað á svaka gaman endilega kíkja  hottis  mig hlakkar bara svo til að geta fengið mér í glas með þeim og farið með niður  í bæ og djammað en ég er samt alveg róleg það er bara þegar það er ný búið að vera hittingur þá er ég svolítið fúl að geta ekki tekið almennilega þátt í öllu. En svona er það bara og ég sætti mig bara við það. 

Ég og mamma fórum í heimsókn til Guðný og Júlíu í dag alveg svaka gaman það er voða gaman að leika við lítill börn þá fynnst okkur við svo rosalega stórir en við erum alltaf góðir við hana Júlíu við gáfurm henni nami vegna þess að hún var lasinn og þá þurfti hún að fá nami.

Hann Guðbrandur minn var svo fyndin á Sunnudagskvöldið, hann var búin að vera upp í sumarbústað með ömmu sinni og afa og búin að fara seinnt að sofa og vakna snema í þrjár nættur og á sunnudagskvöldið þá var hann kominn með svo mikinn svefngalsa að hann ætlaði aldrei að geta sofnað, það var allt svo svakalega fyndið sem hann sagði og hann hafði svo rosalega mikið að segja það var ekki stoppað að tala þannig að það endaði þannig að við tókum hann bara upp í til okkar eitthvað um 24.30 og þá var hann ennþá í fullu fjöri og þótt að við værum alveg að sofna sitt hvoru meginn við hann þá var hann hress, hendurnar á honum voru stríðskarlar og þeir gerðu eitthvað alveg svakalega fyndið og það var hleigið í  ca.15 mín og svo var haldið áfram að leika sér og hlæja og spjalla við sjálfan sig og allt var svo fyndið og ég held að hann hafi sofnað eitthvað um 2.00 ég man ekki neitt eftir það kannski sofnaði ég bara en ekki hann 

 

Mér fynnst ég eiga svo sæta stráka. lang sætastir og þeir eru alveg bestu vinir.

bless í bili.


» 0 hafa sagt sína skoðun

30.06.2006 12:06:52 / asta

gaman gaman

það er svo gmana að vera til núna Sólveig er ný kominn til íslandsog við ætlum að hittast á laugardaskvöldið og elda saman og þær ætla að fá sér í glas ég ætla bara að fá sos í glasið mitt en það verður svaka gaman, það er alltaf gaman þegar við hittumst allar . ég var í klippingu og litun og plokkun í gær og ég er kominn með stutt hár og mér fynnst ég vera alveg svaka sæt.
ég skrifa meira eftir helgi ég nenni ekki að skrifa núna.

» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3
Dagsetning
10. febrúar 2012
Klukkan